
Hús í smíðum. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Raunverð íbúða lækkar og fasteignaviðskipti í lágmarki
Umsvif á fasteignamarkaði hér á landi hafa ekki verið minni í ágústmánuði í tólf ár, samkvæmt nýjum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Alls voru gerðir 727 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði í ágúst, 22% færri en í júlí og 24% færri en í sama mánuði í fyrra. Á fyrstu átta mánuðum ársins fækkaði kaupsamningum um 15% frá fyrra ári. Á sama tíma hefur íbúðum á sölu fjölgað verulega um allt land. Í október voru 4.050 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu, 1.425 í nágrenni þess og 1.250 annars staðar á landsbyggðinni. Frá sama tíma í fyrra hefur framboðið aukist um 26% á höfuðborgarsvæðinu, 31% í nágrenni þess og tæplega 38% annars staðar á landinu.