
Katanesland er austan við álverið á Grundartanga. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Skipulagsbreyting staðfest vegna stórfellds landeldis á Grundartanga
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar landeldisstöðvar Aurora fiskeldis ehf. á Grundartanga. Áform fyrirtækisins gera ráð fyrir allt að 28 þúsund tonna árlegri framleiðslu á laxi og er áætlaður fjárfestingarkostnaður á bilinu 25 til 30 milljarðar króna.