Rauðu hjörtun loga nú í öspunum við Stillholt. Ljósm. ÓHK

Rauðu hjörtun lýsa á ný upp Stillholtið

Rauðu ljósahjörtun sem prýða trén við Stillholt á Akranesi eru komin á sinn stað og munu lýsa upp skammdegið næstu vikur. Uppsetning hjartanna er orðin árleg hefð og hjá mörgum marka þau upphaf aðventustemningar í bænum.