Fréttir

true

Skallagrímur beið lægri hlut gegn Selfossi

Skallagrímur tapaði fyrir Selfossi, 86:69, í 1. deild karla í körfuknattleik í Vallaskóla á Selfossi fimmtudagskvöldið 15. október. Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 34 stig gegn 20 stigum Borgnesinga. Leikurinn fór jafnt af stað og leiddu Selfyssingar með tveimur stigum, 20:18, eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Ný lög um bókhald

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi bókhaldslög frá árinu 1994 og færa reglurnar til samræmis við nútímaumhverfi en í dag er bókhald að mestu fært og varðveitt með rafrænum hætti. Í frumvarpsdrögum er lagt til að skýrðar verði reglur um…Lesa meira

true

Baldur dvelur í flotkví í Hafnarfirði

Viðhald og eftirlit stendur nú yfir í Hafnarfjarðarhöfn á Breiðafjarðarferjunni Baldri. Áætlað er að framkvæmdirnar taki fjórar til sex vikur og muni ljúka í síðasta lagi um miðjan nóvember og að þá hefjist siglingar að nýju yfir Breiðafjörðinn. Á meðan er farþegabáturinn Ingólfur í notkun til að halda uppi samgöngum milli Stykkishólms og Flateyjar.Lesa meira

true

Mótmæla harðlega tillögu um fækkun lögregluumdæma

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku var tekin til umræðu tillaga dómsmálaráðherra um fækkun lögregluumdæma. Samþykkt var samhljóða bókun þar sem hugmyndunum er mótmælt harðlega. Í bókun sveitarstjórnar segir meðal annars: „Í lok september tilkynnti Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um fækkun staðbundinna lögregluembætti úr níu í þrjú en auk nýju embættanna verði embætti ríkislögreglustjóra…Lesa meira

true

Niðurstöður PISA könnunar verða afhentar sveitarfélögum og skólum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla, sem eftir því leita, um sínar niðurstöður í PISA könnun fyrir 2025. Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD. Þessi ákvörðun er tekin m.a. vegna ákvörðunar Unnar Brár…Lesa meira

true

Steypustöðin hyggur á 5.500 fermetra stækkun í Borgarnesi

Áætlunin gerir ráð fyrir fjölgun starfa um allt að 40 Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar og Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, undirrituðu síðastliðinn föstudag samkomulag um stækkun lóðar fyrirtækisins í Borgarnesi. Samningurinn markar mikilvægt skref í fyrirhugaðri uppbyggingu Steypustöðvarinnar, en áætlanir gera ráð fyrir að verksmiðjan verði stækkuð um 5.500 fermetra á næstu árum. Gangi…Lesa meira

true

Sýning Hönnu frá Jaðri opnuð í Byggðasafninu

Sýning Hönnu Jónsdóttur frá Jaðri í Suðursveit var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi á laugardaginn. Í verkum sínum tengir Hanna saman tungumál og handverk og leikur sér með stafsetningu, margræðni og óvæntir útúrsnúningar. Árið 2003 stofnaði Hanna verkefnið Ðyslexwhere, þar sem hún vinnur meðal annars með prjónauppskriftir. Þar fá villur og ófullkomleiki…Lesa meira

true

Nokkur tjón í Grundarfirði vegna veðurhvellsins um helgina

Í suðaustan hvassviðri sem fylgdi tveimur lægðum um helgina varð nokkuð tjón í Grundarfirði enda getur vindáttin verið slæm þar. Meðal annars losnuðu þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur á vagni fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á hliðina. Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út til…Lesa meira

true

Leikskólinn Hnoðraból er fjörutíu ára – afmælishátíð á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 20. október, verður með pompi og prakt haldið upp á 40 ára afmæli Leikskólans Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Skólinn hefur frá árinu 2020 verið til húsa í nýju og glæsilegu húsnæði sem er sambyggt grunnskólanum á staðnum. Mjög gott útisvæði er við skólann sem hannað er af Sigurbjörgu Ósk Áskelsdóttur hjá…Lesa meira

true

Gjaldskrár hækkar að hámarki um 2,5%

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt samhljóða að miða við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili í sveitarfélaginu hækki að hámarki um 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að halda aftur af kostnaðarhækkunum heimilanna og leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu. Samþykktin er í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem…Lesa meira