
Niðurstöður PISA könnunar verða afhentar sveitarfélögum og skólum
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla, sem eftir því leita, um sínar niðurstöður í PISA könnun fyrir 2025. Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD. Þessi ákvörðun er tekin m.a. vegna ákvörðunar Unnar Brár Konráðsdóttur sveitarstjóra Borgarbyggðar að kæra til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál þá málsmeðferð ráðuneytisins að hafna því að afhenda gögn úr PISA könnuninni til sveitarfélagsins varðandi grunnskóla í héraðinu.