
Mótmæla harðlega tillögu um fækkun lögregluumdæma
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku var tekin til umræðu tillaga dómsmálaráðherra um fækkun lögregluumdæma. Samþykkt var samhljóða bókun þar sem hugmyndunum er mótmælt harðlega.
Í bókun sveitarstjórnar segir meðal annars: „Í lok september tilkynnti Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um fækkun staðbundinna lögregluembætti úr níu í þrjú en auk nýju embættanna verði embætti ríkislögreglustjóra áfram starfandi. Stefnt að því að frumvarpið verði lagt fram í nóvember. Dalabyggð yrði hluti að umdæmi sem myndi ná yfir Vesturland, Vestfirði og Norðurland. Sveitarstjórn Dalabyggðar leggst eindregið gegn áformum dómsmálaráðherra eins og þau eru í dag, um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum,“ segir í bókun sveitarstjórnar.
„Sveitarstjórn telur að fyrirhugaðar breytingar gangi gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og feli í sér óæskilega miðstýringu opinberrar þjónustu og mikilvægra öryggismála. Íbúar Dalabyggðar eiga rétt á öflugri, aðgengilegri og skilvirkri löggæslu í sínu nærumhverfi sem verður ekki séð að náist með boðuðum breytingum. Þarfagreining og viðmið ríkislögreglustjóra segja að í Dalabyggð þyrftu að vera á bilinu fjórir til níu starfandi lögreglumenn. Meðal viðmiða ríkislögreglustjóra er að um 90% íbúa séu innan 45 mínútna aksturs frá næstu lögreglustöð. Áætlaður viðbragðstími frá Búðardal og í Borgarnes, Hólmavík, Hvammstanga og Reykhóla er á bilinu 43-46 mínútur. Undantekningin í þessu tilviki er Stykkishólmur þar sem er 54 mínútna viðbragðstími.
Fyrirhugað sameinað embætti myndi ná yfir víðfeðmt landsvæði, með ólíkar þarfir og aðstæður. Sameining eingöngu leiðir ekki af sér betri þjónustu né eykur hagkvæmni. Vesturland hefur takmarkaða samleið með stórum hluta þess svæðis sem hið nýja embætti myndi ná til. Aukin fjarlægð milli stjórnenda og þess samfélags sem þjónustan beinist að, getur þvert á móti dregið úr staðbundinni þekkingu og getu til að bregðast hratt við þörfum íbúa. Að mati sveitarstjórnar Dalabyggðar hafa ekki verið færð fram fullnægjandi rök fyrir því hvernig fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Vesturlandi. Loforð og yfirlýsingar um að starfsstöðvum og starfsfólki verði ekki fækkað eru ekki nægjanleg trygging fyrir bættri þjónustu á svæðinu.
Aðstoðarlögreglustjórar hafa ekki sömu valdheimildir og lögreglustjórar, og því getur flutningur yfirstjórnar haft áhrif á ákvarðanatöku, forgangsröðun verkefna og ráðstöfun fjármuna. Reynslan af sameiningu opinberra stofnana sýnir jafnframt að þegar yfirstjórn er færð fjær byggðarlögum getur það haft áhrif á staðsetningu starfa og þróun þjónustu til lengri tíma. Sveitarstjórn tekur undir með öðrum sveitarfélögum sem hafa kallað eftir faglegu mati á kostnaði, ávinningi og áhrifum breytinganna sem boðaðar eru, ásamt nánara samráði við sveitarfélög á Vesturlandi. Hagræðing sem þessi verður ekki talin réttlætanleg nema sýnt sé fram á að hún skili raunverulegum ávinningi og tryggi áframhaldandi öfluga löggæslu á landsbyggðinni.“
Þá segir að Búðardalur liggi mjög miðlægt gagnvart Vesturlandi, Vestfjörðum og vestari hluta Norðurlands, á mikilvægum samgönguás milli þessara svæða. „Ef horfa á til stækkunar lögregluumdæma gerir sveitarstjórn Dalabyggðar kröfu um að horft verði á hin augljósu tækifæri í Dalabyggð. Ástæða er til að skoða vandlega þann möguleika að við endurskipulagningu sé sérstaklega skoðað að efla löggæslu í Búðardal, að staðsetja þar stjórnunar- og samræmingarhlutverk innan hins nýja embættis og vinna þar sérhæfð verkefni sem ekki eru bundin við stærstu þéttbýliskjarnana og með því nýta Búðardal sem viðbragðsmiðju fyrir svæði sem nú liggja á mörkum Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra.“