Fréttir

true

Plastmengun í hafi ógnar lífríki og vistkerfum

Vaxandi plastmengun í heimshöfunum og alvarleg áhrif hennar á lífríki sjávar verða í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu dagana 20.–22. október. Um 250 vísindamenn, stefnumótendur og fulltrúar atvinnulífsins frá rúmlega 30 löndum eru væntanlegir til Íslands til að ræða nýjustu rannsóknir, mögulegar lausnir og leiðir til að draga úr plastmengun. Plast…Lesa meira

true

Taka bleikan október alla leið

Þessir hressu nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar tóku bleikan október alla leið og skarta bleikri hárgreiðslu fyrir málstaðinn. Þeir Róbert Torfi, Hallgrímur Örn, Daníel, Aron, Hans Bjarni og Steinar Freyr stilltu sér upp fyrir Tómas Frey fréttaritara Skessuhorns fyrir bleika myndatöku áður en þeir héldu áfram að ærslast í Félagsmiðstöðinni Eden.Lesa meira

true

Ungmenni fá aukin áhrif á ákvarðanir í Snæfellsbæ

Ungt fólk í Snæfellsbæ fær aukna aðkomu að stjórnsýslu sveitarfélagsins með því að fulltrúum ungmennaráðs verður boðið sæti í nokkrum fastanefndum bæjarins. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október, þegar jafnframt voru samþykktar tilnefningar í ungmennaráð fyrir komandi vetur. Með þessu vill bæjarstjórn styrkja rödd ungs fólks og tryggja að sjónarmið þess fái…Lesa meira

true

Lækka styrki til kaupa á rafbílum

Nýjar reglur um styrki til kaupa á rafbílum taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Helstu breytingar eru þær að lægri styrkur er greiddur út til kaupa á fólksbílum. Verður styrkurinn 400 þúsund krónur í stað 500 þúsund króna nú. Lægra verðþak er auk þess fyrir fólksbíla. Eftir 1. nóvember verða fólksbílar sem kosta meira en 8…Lesa meira

true

Sannfærð um að fjölskyldan hafi fundið sinn stað

„Ég hef ekki einu sinni klappað kind“ Rakel Amlín Svansdóttir, hárgreiðslumeistari, hafði lengi búið á höfuðborgarsvæðinu og starfað þar sem hársnyrtir þegar lífið tók óvænta stefnu. Nú hefur hún ásamt fjölskyldu sinni komið sér fyrir í Tungu í Hörðudal, opnað hárgreiðslustofuna Dalahár í Búðardal og er meira að segja farin að huga að sauðfjárbúskap –…Lesa meira

true

Fræðslukvöld um barnsmissi í Vinaminni

Í tilefni af alþjóðlegum degi barnsmissis, fimmtudaginn 15. október, verður efnt til fræðslukvölds í Vinaminni á Akranesi klukkan 20 í kvöld. Þar verður fjallað um það erfiða ferli sem tekur við þegar foreldrar missa barn og hvernig fjölskylda, vinir og aðrir aðstandendur geta veitt stuðning á slíkum sorgartímum. Á fræðslukvöldinu mun Sif Agnarsdóttir deila persónulegri…Lesa meira

true

KPMG opnar fyrir umsóknir um samfélagsstyrki 2027

KPMG hefur tekið upp skýrara og markvissara fyrirkomulag við veitingu samfélagsstyrkja á landsbyggðinni. Markmiðið er að tryggja að stuðningur félagsins nýtist þar sem hann getur haft mest jákvæð áhrif og styðji við verkefni sem skapa virði fyrir samfélagið. Með nýrri styrktarstefnu er lögð aukin áhersla á samfélagsleg áhrif verkefna og hvernig þau falla að framtíðarsýn…Lesa meira

true

Þættirnir um Elmu lofa góðu

Færri komust að en vildu þegar framleiðendur nýrra spennuþátta um lögreglukonuna Elmu buðu til forsýningar í gærkvöldi í Bíóhöllinni á Akranesi. Þættirnir voru að stórum hluta teknir upp á Akranesi. Vildu framleiðendur þeirra þakka Skagamönnum fyrir hlýjar og góðar móttökur í undirbúningi og við gerð þáttanna. Meðal annars var boðið á forsýningu þeim sem lögðu…Lesa meira

true

Marktækt meiri kolefnisbinding í beittu landi en óbeittu

Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands á Hólum, Háskóla Íslands og innlendar og erlendar samstarfstofnanir sýnir að marktækt meira kolefni mældist í jarðvegi í landi þar sem beit hefur verið samfelld en á svæðum sem hafa verið friðuð fyrir beit. Þetta gengur þvert á fyrri hugmyndir vísindamanna um að beit sé skaðleg bæði plöntum og…Lesa meira

true

Áherslur ungmenna til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar

Áherslur og ábendingar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar verða teknar til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þetta samþykkti sveitarstjórn í kjölfar sameiginlegs fundar þar sem ungmennin kynntu sjónarmið sín og þau málefni sem þeim þykja brýn. Allir fimm fulltrúar ungmennaráðsins sátu fundinn, þau Anton Teitur Ottesen formaður, Díana Ingileif Ottesen, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri…Lesa meira