Lækka styrki til kaupa á rafbílum

Nýjar reglur um styrki til kaupa á rafbílum taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Helstu breytingar eru þær að lægri styrkur er greiddur út til kaupa á fólksbílum. Verður styrkurinn 400 þúsund krónur í stað 500 þúsund króna nú. Lægra verðþak er auk þess fyrir fólksbíla. Eftir 1. nóvember verða fólksbílar sem kosta meira en 8 milljónir króna ekki styrkhæfir. Áður var hámarkið 10 milljónir króna. Bílar sem eru nýskráðir á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis geta fengið allt að 320.000 kr. í stað 400.000 kr. Styrkir til sendibíla verða áfram 500.000 kr. og verðþakið 10 milljónir króna.