Plastmengun í hafi ógnar lífríki og vistkerfum

Vaxandi plastmengun í heimshöfunum og alvarleg áhrif hennar á lífríki sjávar verða í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu dagana 20.–22. október. Um 250 vísindamenn, stefnumótendur og fulltrúar atvinnulífsins frá rúmlega 30 löndum eru væntanlegir til Íslands til að ræða nýjustu rannsóknir, mögulegar lausnir og leiðir til að draga úr plastmengun. Plast er nú að finna um öll heimshöfin, allt frá yfirborði sjávar niður á hafsbotn, og hefur örplast þegar borist inn í fæðukeðjuna og greinst í mannslíkamanum. Mengunin ógnar vistkerfum sjávar, lýðheilsu og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins.