
Fræðslukvöld um barnsmissi í Vinaminni
Í tilefni af alþjóðlegum degi barnsmissis, fimmtudaginn 15. október, verður efnt til fræðslukvölds í Vinaminni á Akranesi klukkan 20 í kvöld. Þar verður fjallað um það erfiða ferli sem tekur við þegar foreldrar missa barn og hvernig fjölskylda, vinir og aðrir aðstandendur geta veitt stuðning á slíkum sorgartímum. Á fræðslukvöldinu mun Sif Agnarsdóttir deila persónulegri reynslu sinni. Jafnframt mun Jóhanna Ólafsdóttir ljósmóðir fjalla um viðbrögð og verklag innan heilbrigðiskerfisins og séra Þóra Björg segir frá aðkomu kirkjunnar og ræðir sorgarferlið.
Áður en fræðslukvöldið hefst, eða klukkan 19, verður stutt minningarstund við minningarreit látinna barna í Akraneskirkjugarði. Viðburðirnir eru á vegum kirkjunnar og öllum opnir, hvort sem þeir hafa sjálfir upplifað barnsmissi eða vilja öðlast betri skilning á sorginni og því hvernig hægt er að styðja fólk sem gengur í gegnum slíkan harmleik.