
Hér á landi er að finna víðáttumestu beitilönd Norður-Evrópu. Þessi svæði samanstanda aðallega af graslendi, heiðum og blöndu af þessum tveimur gróðurgerðum. Myndin var tekin á Arnarvatnsheiði í byrjun september. Ljósm. mm
Marktækt meiri kolefnisbinding í beittu landi en óbeittu
Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands á Hólum, Háskóla Íslands og innlendar og erlendar samstarfstofnanir sýnir að marktækt meira kolefni mældist í jarðvegi í landi þar sem beit hefur verið samfelld en á svæðum sem hafa verið friðuð fyrir beit. Þetta gengur þvert á fyrri hugmyndir vísindamanna um að beit sé skaðleg bæði plöntum og vistkerfum. Rannsóknin er sú fyrsta sem gerð er hérlendis á áhrifum friðunar lands fyrir beit á kolefnisbúskap vistkerfa og niðurstöður hennar birtust nýverið í vísindatímaritinu Global Change Biology Communications.