
Ungmennaráð. Ljósm. Snæfellsbær
Ungmenni fá aukin áhrif á ákvarðanir í Snæfellsbæ
Ungt fólk í Snæfellsbæ fær aukna aðkomu að stjórnsýslu sveitarfélagsins með því að fulltrúum ungmennaráðs verður boðið sæti í nokkrum fastanefndum bæjarins. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október, þegar jafnframt voru samþykktar tilnefningar í ungmennaráð fyrir komandi vetur. Með þessu vill bæjarstjórn styrkja rödd ungs fólks og tryggja að sjónarmið þess fái aukið vægi við stefnumótun og ákvarðanatöku. Þátttakan veitir ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á málefni sem varða framtíð þeirra og samfélagsins alls, um leið og þau öðlast dýrmæta innsýn í starfsemi sveitarfélagsins.