
Spennan magnast og salur Bíóhallarinnar að fyllast. Ljósm. Akraneskaupstaður
Þættirnir um Elmu lofa góðu
Færri komust að en vildu þegar framleiðendur nýrra spennuþátta um lögreglukonuna Elmu buðu til forsýningar í gærkvöldi í Bíóhöllinni á Akranesi. Þættirnir voru að stórum hluta teknir upp á Akranesi. Vildu framleiðendur þeirra þakka Skagamönnum fyrir hlýjar og góðar móttökur í undirbúningi og við gerð þáttanna. Meðal annars var boðið á forsýningu þeim sem lögðu til húsnæði sitt, íbúum á Sólmundarhöfða 7 þar sem Elma bjó og margar tökur fóru fram. Lögreglustöðin í þáttunum var hins vegar gamla Landsbankahúsið við Akratorg sem nú er byrjað að breyta í hótel.