Fréttir

true

Tekist á um Holtavörðuheiðarlínu í byggðarráði

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gærmorgun lagði Haukur Þór Hauksson fulltrúi Miðflokksins fram tillögu varðandi væntanlega Holtavörðuheiðarlínu 2 um sveitarfélagið. Tillaga Hauks var svohljóðandi: „Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir eindreginni andstöðu sinni við að Holtavörðuheiðarlína verði lögð yfir byggðir Borgarfjarðar. Byggðarráð leggur til að línuleiðin liggi ofan byggðar í Borgarfirði. Ljóst er að ef sveitarfélagið tekur…Lesa meira

true

Ljósleiðari fór í sundur

Ljósleiðaraslit var um klukkan 10 í morgun á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga í Hvalfjarðarsveit. Í tilkynningu frá Mílu kemur fram bilunin hafi áhrif á farsímasamband á svæðum í Svínadal, Lambhaga og á Grundartanga, auk nettenginga í nágrenni við Lambhaga. Búið er að staðsetja bilunina rétt austan við hringtorgið inn á Akranes. Framkvæmdasvið Mílu…Lesa meira

true

Hækka að hámarki gjöld um 2,5%

Sveitarstjórn Dalabyggðar ákvað á fundi sínum 15. október sl. að hækkanir á almennum gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5%. Við ákvörðunina var horft til þeirrar efnahagslegu stöðu sem heimili og fyrirtæki búa við um þessar mundir, auk þess sem lögð var áhersla á að tryggja áfram traustan rekstur sveitarfélagsins og góða þjónustu…Lesa meira

true

Félagsstarf eldri borgara í kirkjunni og Vinaminni

Á miðvikudögum er blómlegt félagsstarf eldri borgara í Vinaminni og í Akraneskirkju. Séra Ólöf Margrét Snorradóttir heldur utan um starfið. Síðastliðinn miðvikudag var bænastund í kirkjunni með tónlist kl. 12:10 en að því búnu var opið hús í Vinaminni þar sem gestir gæddu sér á súpu. Að þessu sinni sungu Ólafur Magnússon, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir…Lesa meira

true

Felldu tillögu um sérstaka hagræðingarnefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær lagði fulltrúi Miðflokksins fram tillögu um stofnun sérstakrar nefndar sem fengi það hlutverk að rýna og hagræða í rekstri sveitarfélagsins. Tillagan var lögð fram í ljósi þess að sveitarstjórn samþykkti 7. október síðastliðinn að auka þurfi aðhald í rekstri á síðari hluta ársins. Fimm mánaða uppgjör sveitarsjóðs hafði sýnt…Lesa meira

true

Setbergssókn fær rausnarlegar gjafir

Sóknarnefnd Setbergssóknar í Grundarfirði fékk góðan gest á fund nefndarinnar á dögunum. Þar var mætt Matthildur S. Guðmundsdóttir til að færa sókninni afar veglega gjöf, tvær milljónir króna, fyrir sína hönd og barna sinna. Gjöfina má nýta til að brúa bil í rekstri, eða annað sem sóknarnefndin telur þurfa. Áður höfðu Matthildur og fjölskylda gefið…Lesa meira

true

Hver mínúta skiptir máli – fólk er hvatt til að skrá öll hjartastuðtæki

Í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum. Heilbrigðisráðuneytið, í samstarfi við fjölda aðila, stendur fyrir skráningu hjartastuðtækja á landsvísu. Með…Lesa meira

true

Plastmengun í hafi ógnar lífríki og vistkerfum

Vaxandi plastmengun í heimshöfunum og alvarleg áhrif hennar á lífríki sjávar verða í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu dagana 20.–22. október. Um 250 vísindamenn, stefnumótendur og fulltrúar atvinnulífsins frá rúmlega 30 löndum eru væntanlegir til Íslands til að ræða nýjustu rannsóknir, mögulegar lausnir og leiðir til að draga úr plastmengun. Plast…Lesa meira

true

Taka bleikan október alla leið

Þessir hressu nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar tóku bleikan október alla leið og skarta bleikri hárgreiðslu fyrir málstaðinn. Þeir Róbert Torfi, Hallgrímur Örn, Daníel, Aron, Hans Bjarni og Steinar Freyr stilltu sér upp fyrir Tómas Frey fréttaritara Skessuhorns fyrir bleika myndatöku áður en þeir héldu áfram að ærslast í Félagsmiðstöðinni Eden.Lesa meira

true

Ungmenni fá aukin áhrif á ákvarðanir í Snæfellsbæ

Ungt fólk í Snæfellsbæ fær aukna aðkomu að stjórnsýslu sveitarfélagsins með því að fulltrúum ungmennaráðs verður boðið sæti í nokkrum fastanefndum bæjarins. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október, þegar jafnframt voru samþykktar tilnefningar í ungmennaráð fyrir komandi vetur. Með þessu vill bæjarstjórn styrkja rödd ungs fólks og tryggja að sjónarmið þess fái…Lesa meira