Fréttir

true

Skallagrímur hóf tímabilið með naumu tapi

Körfuboltatímabilið er farið af stað og þrjú lið af Vesturlandi leika í 1. deild karla í vetur; ÍA, Skallagrímur og Snæfell. Skallagrímsmenn riðu á vaðið í gærkvöldi þegar þeir sóttu KV heim á Meistaravelli í Reykjavík. Borgnesingar byrjuðu af miklum krafti en urðu að sætta sig við naumt 84:82 tap eftir spennandi lokamínútur. Skallagrímur hafði…Lesa meira

true

Bæjarfulltrúar á Akranesi lofa hófstilltum hækkunum

Bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar lýsa í tilkynninu vilja til að kaupstaðurinn taka þátt í sameiginlegu átaki sveitarfélaga og ríkis gegn verðbólgu. Stefnt er að því að almennar hækkanir á gjaldskrám bæjarins á næsta ári verði ekki meiri en 2,5% að því gefnu að ríkið og önnur sveitarfélög taki einnig þátt. „Næsti fundur bæjarráðs fer fram 12. október…Lesa meira

true

Talsverð aukning í útflutningsverðmæti sjávarafurða

Á fyrstu átta mánuðum þessa árs nam útflutningsverðmæti sjávarafurða, að fiskmeti meðtöldu, um 253 milljörðum króna. Það jafngildir ríflega 39% af verðmæti alls vöruútflutnings á tímabilinu. Þetta kemur fram í Radarnum, vefriti SFS. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um rúmlega 7% í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til gengisbreytinga er aukningin aðeins…Lesa meira

true

Ævintýri og félagsskapur í Söguheimum

Söguheimar í Grundarfjarðarbæ er vettvangur fyrir fólk sem vill koma saman, spila borðspil og eiga notalega stund í góðum félagsskap. Spilakvöldin fara fram í Sögumiðstöðinni og eru öllum opin án endurgjalds. Næsta spilakvöld verður laugardaginn 17. október og hefst kl. 19:30. Aðallega er spilað ævintýralegt hlutverkaspil sem svipar til hins þekkta Dungeons & Dragons, en…Lesa meira

true

Heiðra minningu fjögurra fallinna stjarna í tónlistarheiminum

„Við heiðrum minningu og tónlistararf fjögurra goðsagna íslenskrar tónlistarsögu með glæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 7. nóvember næstkomandi. Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson og Megas hafa hver á sinn hátt, haft djúpstæð áhrif á íslenska dægurtónlist og mótað tónlistarsögu þjóðarinnar í meira en hálfa öld,“ segir í kynningu tónleika sem haldnir verða…Lesa meira

true

Söfnun fyrir Lilju Grétu gekk framar vonum

Markmiðinu hefur verið náð Um miðja síðustu viku hófu vinir Lilju Grétu Norðdahl á Akranesi fjársöfnun til að hún geti sótt sér sérhæfða læknismeðferð á Írlandi við þrenndartaugaverk sem hefur sett sífellt meiri svip á allt líf hennar og fjölskyldunnar. Köstin geta verið svo hörð að kalla þarf á sjúkrabíl jafnvel oft í hverri viku.…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Grundarfjarðar veitti fjórum milljónum króna til samfélagsins

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur á starfsárinu 2025–2026 veitt samtals fjórum milljónum króna í styrki til íþróttastarfs, umönnunar og samfélagsverkefna í heimabyggð. Að baki þessum stuðningi liggur öflugt sjálfboðastarf félaga og góður stuðningur bæjarbúa við fjáröflun klúbbsins. Styrkir starfsársins skiptust þannig að Meistaraflokkur blakdeildar UMFG fékk 200.000 kr., Pílufélag Grundarfjarðar í UMFG 300.000 kr., Dvalar- og hjúkrunarheimilið…Lesa meira

true

Hörður hættir hjá Landsvirkjun

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009, í miðju efnahagshruni, og á þeim 17 árum sem hann hefur gegnt starfinu hafa orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi. Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var…Lesa meira

true

Mótmæla áformum um að leggja niður embætti lögreglustjóra

„Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Áformin ganga þvert gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og fela í sér enn eitt skrefið í átt til miðstýringar þar sem ákvörðunarvald er fært burt frá því…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit vill halda gjaldskrárhækkunum innan 2,5%

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. september sl. að taka þátt í sameiginlegu átaki sveitarfélaga gegn verðbólgu. Stefnt verður að því að almennar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins verði ekki meiri en 2,5% árið 2027. Með samþykktinni tekur sveitarstjórnin undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um gjaldskrár sveitarfélaga á næsta ári. Hvalfjarðarsveit hyggst hafa…Lesa meira