
Mótmæla áformum um að leggja niður embætti lögreglustjóra
„Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Áformin ganga þvert gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og fela í sér enn eitt skrefið í átt til miðstýringar þar sem ákvörðunarvald er fært burt frá því fólki sem það varðar,“ segir í bókun byggðarráðs sem samþykkt var á fundi í morgun.
„Löggæsla er eitt af grunnhlutverkum ríkisins. Íbúar landsbyggðarinnar greiða sína skatta til jafns við aðra landsmenn og eiga skýlausan rétt á því að ríkið sinni þessu kjarnaverkefni af festu og í nálægð við þá. Hið nýja embætti næði yfir stóran hluta landsins, frá Vesturlandi um Vestfirði og allt Norðurland. Vesturland á fátt sameiginlegt með því svæði hvað varðar samgöngur, þjónustusókn og samstarf. Stærra bákn er ekki sama og betri þjónusta. Engin rök hafa verið færð fyrir því að löggæsla á Vesturlandi verði betri með því að stýra henni frá Akureyri eða að löggæsla á Norðurlandi verði betri ef henni verður stýrt frá Ísafirði. Fullyrðingar um að starfsstöðvum fækki ekki og að aðstoðarlögreglustjórar verði í hverju umdæmi eru haldlitlar. Aðstoðarlögreglustjóri fer ekki með það vald sem lögreglustjóri hefur. Forgangsröðun, fjárveitingar og stefnumótun færast fjær íbúum, og reynslan af sameiningum ríkisstofnana sýnir að þegar yfirstjórn flyst burt fylgja störf og þjónusta á eftir. Íbúar á Vesturlandi hafa séð þá þróun áður og láta ekki bjóða sér hana aftur.“
Byggðarráð krefst þess að lagt verði fram raunhæft mat á kostnaði og ávinningi við breytingarnar. „Hagræðing sem byggist á því að flytja vald frá landsbyggðinni án þess að sýnt sé fram á betri þjónustu eða betri nýtingu almannafjár er engin hagræðing. Byggðarráð krefst þess að dómsmálaráðherra falli frá áformum um að færa yfirstjórn löggæslu á Vesturlandi úr landshlutanum og hafi raunverulegt samráð við sveitarfélög á Vesturlandi áður en lengra er haldið.“