
Lionsklúbbur Grundarfjarðar veitti fjórum milljónum króna til samfélagsins
Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur á starfsárinu 2025–2026 veitt samtals fjórum milljónum króna í styrki til íþróttastarfs, umönnunar og samfélagsverkefna í heimabyggð. Að baki þessum stuðningi liggur öflugt sjálfboðastarf félaga og góður stuðningur bæjarbúa við fjáröflun klúbbsins. Styrkir starfsársins skiptust þannig að Meistaraflokkur blakdeildar UMFG fékk 200.000 kr., Pílufélag Grundarfjarðar í UMFG 300.000 kr., Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól 500.000 kr., Skíðadeild Grundarfjarðar: 1.500.000 kr. og Þaksjóður Grundarfjarðarkirkju 1.500.000 kr. „Þessi verkefni endurspegla fjölbreytt hlutverk klúbbsins: að styðja við íþróttir og félagslíf, hlúa að fólki og leggja sitt af mörkum til þess að byggja upp og varðveita það sem skiptir samfélagið máli,“ segir í tilkynningu.
Framlag Lionsfélaga á starfsárinu felst einnig í vinnuframlagi. Félagar hafa meðal annars tekið þátt í hreinsun meðfram vegum frá Búlandshöfða að afleggjaranum upp á Vatnaleið og annast sölu fermingarskeyta til fjáröflunar. Með samstilltu átaki verða góðar hugmyndir að verkefnum sem gagnast heimabyggðinni. Við viljum gera enn betur og er áhugasömum boðið að vera með. „Lionsklúbbur Grundarfjarðar óskar eftir fleiri félögum sem vilja taka þátt í gefandi félagsstarfi og láta gott af sér leiða. Nýjum félögum fylgja nýjar hugmyndir, fleiri hendur og aukinn kraftur til að styðja við samfélagið. Öll sem hafa áhuga eru hvött til að hafa samband við félaga í klúbbnum og kynna sér starfið. Það þarf ekki að búa yfir sérstakri reynslu; áhugi, félagsskapur og vilji til að leggja lið eru góður grunnur,“ segir í tilkynningu.
Að endingu þakkar klúbburinn bæjarbúum, fyrirtækjum og öllum stuðningsaðilum fyrir góðan stuðning. „Árangurinn er sameiginlegur og sýnir hversu miklu við getum áorkað þegar við stöndum saman.“