
Söfnun fyrir Lilju Grétu gekk framar vonum
Markmiðinu hefur verið náð
Um miðja síðustu viku hófu vinir Lilju Grétu Norðdahl á Akranesi fjársöfnun til að hún geti sótt sér sérhæfða læknismeðferð á Írlandi við þrenndartaugaverk sem hefur sett sífellt meiri svip á allt líf hennar og fjölskyldunnar. Köstin geta verið svo hörð að kalla þarf á sjúkrabíl jafnvel oft í hverri viku. Á heimilinu hafa börn hennar þrjú lært hvert sitt hlutverk þegar verst lætur. „Þetta er bara orðið rosalega erfitt líf,“ sagði Lilja Gréta í samtali við blaðamann Skessuhorns. Hún bindur vonir við að sérhæfð meðferð á Írlandi geti dregið verulega úr verkjunum og fært henni að nýju aukin lífsgæði. Þrenndartaugaverkur, eða „trigeminal neuralgia,“ er langvinnur verkjasjúkdómur sem leggst á þrenndartaugina, taug sem flytur meðal annars skynboð frá andliti til heila. Taugin greinist í þrjár megingreinar sem liggja að enni og augnsvæði, kinn og kjálka. Sjúkdómurinn einkennist gjarnan af skyndilegum, mjög sterkum verkjaköstum sem fólki finnst líkjast raflosti eða stingandi verk í andliti. Létt snerting, tannburstun, tygging og jafnvel kaldur vindblær geta komið af stað verkjakasti. Algengast er að verkurinn sé öðrum megin í andlitinu en í sjaldgæfum tilvikum getur hann komið fram beggja vegna, líkt og á við í tilfelli Lilju Grétu. Svo ótrúlegt sem það hljómar styrkja Sjúkratryggingar Íslands ekki sjúklinga sem glíma við þennan sjúkdóm.
Hámarkinu náð
Fjársöfnun var hrundið af stað um miðja síðustu viku og tóku höndum saman þær Andrea Þórunn Björnsdóttir, Amma Andrea, og Eyrún Sigríður Sigurðardóttir vinkona Lilju Grétu. Þær Andrea og Eyrún komu við á ritstjórn Skessuhorns fyrr í dag með þau ánægjulegu tíðindi að markmiði söfnunarinnar hafi verið náð og munu þær afhenda Lilju Grétu tvær milljónir króna. Upphæðin á að duga fyrir flugfari, hótelgistingu og læknismeðferð á Írlandi. „Það brugðust ótrúlega margir við kalli okkar og sýndu samhug með Lilju Grétu,“ segja Eyrún og Andrea. „Það er alveg ótrúlegt að upplifa svona sterk og jákvæð viðbrögð úr samfélaginu, ekki síst í ljósi þess að Lilja Gréta og fjölskylda hennar á ekki stórt bakland á Akranesi. Mjög margir voru að gefa frá 500 krónum og upp í stærri upphæðir. Þetta var í raun stuttur fyrirvari sem við fengum, en Lilja Gréta á eins og kunnugt er pantaða læknismeðferð á Írlandi 26. október næstkomandi. Við fengum Skessuhorn með okkur í lið, tekið var viðtal við Lilju Grétu og aðstæðum hennar lýst. Svo notuðum við allar glufur sem við þekkjum á samfélagsmiðlum, með deilingu viðtals og fleiri leiðum. Viðtalið við Lilju Grétu fór á flug, fleiri fjölmiðlar gengu til liðs við okkur og á nokkrum dögum náðum við að safna upp í efri mörk þess markmiðs sem við settum okkur. Við viljum því koma á framfæri kærum þökkum til þeirra fjölmörgu sem lögðu sitt af mörkum. Við erum í raun nánast grenjandi af þakklæti yfir hvernig samfélagið tók utan um Lilju Grétu,“ sögðu þær Andrea og Eyrún Sigríður.