
Stjórnsýsluhúsið. Ljósm. Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit vill halda gjaldskrárhækkunum innan 2,5%
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. september sl. að taka þátt í sameiginlegu átaki sveitarfélaga gegn verðbólgu. Stefnt verður að því að almennar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins verði ekki meiri en 2,5% árið 2027.