Ævintýri og félagsskapur í Söguheimum

Söguheimar í Grundarfjarðarbæ er vettvangur fyrir fólk sem vill koma saman, spila borðspil og eiga notalega stund í góðum félagsskap. Spilakvöldin fara fram í Sögumiðstöðinni og eru öllum opin án endurgjalds. Næsta spilakvöld verður laugardaginn 17. október og hefst kl. 19:30.

Aðallega er spilað ævintýralegt hlutverkaspil sem svipar til hins þekkta Dungeons & Dragons, en spilið er sérstaklega hannað af Rannveigu sem jafnframt hefur umsjón með kvöldunum. Einnig gefst kostur á að spila önnur spil ef áhugi er fyrir hendi. Markmið Söguheima er að skapa opið og notalegt rými þar sem fólk getur hist, kynnst og notið samverunnar. Þátttakendum er velkomið að taka með sér snarl og drykki á meðan haldið er saman í ævintýraferð kvöldsins.

Kvöldunum er skipt eftir aldri. Ungmenni á aldrinum 12–17 ára spila frá kl. 19:30 til 21 en frá kl. 21 til 23 tekur við hópur 18 ára og eldri. Þátttaka er ókeypis en þeir sem vilja geta keypt byrjunarpakka með ýmsum fylgihlutum á hagstæðu verði. Æskilegt er að skrá sig fyrir fram svo auðveldara sé að halda utan um fjölda þátttakenda og skipulag kvöldanna.

Athuga; Fréttin hefur verið uppfærð m.t.t. dagsetningar, viðburðinum var frestað um hálfan mánuð.

Ævintýri og félagsskapur í Söguheimum - Skessuhorn