Fréttir

true

Meirihluti landsmanna jákvæður í garð ferðaþjónustu

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins tæp 12% telja áhrifin neikvæð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína framkvæmdi í maímánuði fyrir Samtök ferðaþjónustunnar og niðurstöðurnar sýna því afgerandi jákvætt viðhorf til áhrifa ferðaþjónustu á samfélagið. Hlutfall þeirra sem meta…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026

Atvinnusýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 9. til 11. október næstkomandi. Sýningin hefur það að markmiði að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu. Á sýningunni verða kynnt fyrir bændum og öðrum gestum tæki og tól til landbúnaðar og ýmsar rekstrarvörur og aðrar vörur fyrir íslenskan landbúnað.Lesa meira

true

Frá ölstofu í bistró

Umtalið er okkar besta auglýsing – segja eigendur Bara Bistró í Borgarnesi Það sem hófst sem hugmynd um einfaldan bar í Borgarnesi hefur á fimm árum þróast í veitingastað með sífellt fjölbreyttari starfsemi. Hjónin Hlynur Þór Ragnarsson og Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir reka Bara Bistro, áður „Bara Ölstofa Lýðveldisins,“ og hafa undanfarin ár byggt staðinn jafnt…Lesa meira

true

Ferðafélag Snæfellsness orðin deild í FÍ

Stjórn Ferðafélags Íslands hefur samþykkti einróma umsókn Ferðafélags Snæfellsness um að verða á ný deild í FÍ. Guðmundur Rúnar Svansson í Dalsmynni, formaður félagsins, segir að forseti FÍ hafi hringt í sig rétt í þann mund sem gönguferð félagsins á Búrfell var að hefjast, en fararstjóri í henni var Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. „Þetta…Lesa meira

true

Bjóða lóð undir nýjan Tækniskóla á Akranesi

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Hafnarfjarbær misst af lestinni með að verða framtíðar staðsetning fyrir nýjan 3000 fermetra Tækniskóla. Nú er því hafin leit að nýrri staðsetningu og hafa nú þegar nokkrir staðir verið nefndir. Akraneskaupstaður hefur brugðist við og boðið byggingarnefnd nýs Tækniskóla að skoða aðstæður á Akranesi, enda hentug staðsetning…Lesa meira

true

Baldur fer í slipp í október

Breiðafjarðarferjan Baldur fer í slipp í Hafnarfirði sunnudaginn 6. október næstkomandi og er áætlað að viðhald taki fjórar til sex vikur. Síðasta áætlunarferð Baldurs yfir Breiðafjörð áður en skipið fer í slipp verður því mánudaginn 5. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á meðan Baldur er í slipp verður farþegabáturinn Ingólfur frá Ísafirði…Lesa meira

true

Tillögur gerðar um breytingar á skiptingu þingsæta

Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði fyrr á þessu ári, og skoða átti aukið jafnræði í kosningum og þingsætadreifingu, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til þrjár breytingar á kosningalögum sem miða að því að jafna atkvæðisrétt. Það mun þýða fækkun þingmanna í dreifbýliskjördæmum. Í fyrsta lagi er lagt til að kjördæmissætum verði fækkað niður í sex…Lesa meira

true

Ráðherra boðar heildar endurskoðun byggðakvótans

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla, samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Reglugerðin gildir fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 og hefur tekið gildi. Í henni er tilgreint hvernig ráðstafa skuli þeim afla sem dreginn er frá heildarafla og rennur til byggðakerfis sjávarútvegsins, nánar tiltekið til almenns byggðakvóta, byggðakvóta Byggðastofnunar, línuívilnunar,…Lesa meira

true

Eldri húsbíll brann

Snemma í morgun fékk Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna elds í húsbíl. Bíllinn stóð þétt upp við vegg Skagavershússins á Akranesi. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra var grunur um að haldið hafi verið til í bílnum í sumar og nálguðust slökkviliðsmenn verkefnið með tilliti til þess. Bíllinn reyndist hins vegar mannlaus. Var hann…Lesa meira