Ferðafólk við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. mm

Meirihluti landsmanna jákvæður í garð ferðaþjónustu

Alls 71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Viðhorfið mælist mjög jákvætt í öllum landshlutum, en aðeins tæp 12% telja áhrifin neikvæð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína framkvæmdi í maímánuði fyrir Samtök ferðaþjónustunnar og niðurstöðurnar sýna því afgerandi jákvætt viðhorf til áhrifa ferðaþjónustu á samfélagið.