Fréttir

true

Um 10.500 börn undir lágtekjumörkum

Um 10.500 börn á Íslandi bjuggu á heimilum undir lágtekjumörkum árið 2024, eða 12,6% barna í landinu. Hlutfallið hefur þó lækkað töluvert frá aldamótum þegar það var 16,5%. Börnum sem búa við varanlega fátækt hefur einnig fækkað lítillega og var hlutfall þeirra 5,1% árið 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um fátækt barna og…Lesa meira

true

Nýr golfskáli að rísa hjá Jökli

Mikill hugur er í félögum í Golfklúbbnum Jökli í Snæfellsbæ sem í sumar tóku í notkun nýjan níu holu golfvöll við flugvöllinn í Rifi. Nú er verið að reisa nýjan golfskála sem er 125 fermetrar að stærð. Hjörtur Ragnarsson, ritari golfklúbbsins, segir í samtali við Skessuhorn að húsið sé keypt frá Landshúsum ehf. og er…Lesa meira

true

Jörð skalf undir vestanverðum Langjökli

Klukkan 14:18 í dag varð skjálfti 4,2 að stærð í vestanverðum Langjökli og hafa nokkrir minni eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Jarðskjálftavirkni í og við Langjökul er algeng en síðast varð skjálfti af þessari stærð í júní 2022 og mældist sá 4,6 að stærð. Veðurstofu hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist…Lesa meira

true

Stjórnarráðið beinir auglýsingakaupum til fjölmiðla

Stjórnarráðið hefur ákveðið að beina auglýsingakaupum ráðuneytanna í auknum mæli til fjölmiðla í stað samfélagsmiðla og annarra miðla. Breytingin er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla sem kynnt var í desember síðastliðnum. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið reið á vaðið og ákvað að kaupa einungis auglýsingar af fjölmiðlum. Önnur ráðuneyti hafa nú tekið upp sama…Lesa meira

true

Góðar heimtur í fyrstu leit

Réttað var í Þverárrétt í Borgarfirði síðdegis á sunnudag og í gærmorgun. Að sögn bænda gekk vel að smala afréttinn og það var staðfest með tölum um heimtur. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr réttinni. Veðrið var með besta móti, stemningin góð og lömbin væn.Lesa meira

true

Litla kartöfluhátíðin á safnasvæðinu í Görðum

Litla kartöfluhátíðin fór fram á safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðastliðinn laugardag í blíðskapar veðri. Fjölmargir gestir lögðu leið sína á svæðið, keyptu kartöflur og annað nýupptekið grænmeti beint frá bændum, hlýddu á fróðlegt erindi um sögu kartöflunnar og gæddu sér á heldur óvenjulegu góðgæti – kartöflukonfekti. Hátíðin var nú haldin í fimmta sinn. Kartöflurækt…Lesa meira

true

Þriðji flokkur karla Íslandsmeistari

Þriðji flokkur karla hjá ÍA tryggði sér á dögunum Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 3:2 sigri á Breiðabliki þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu. Liðið, sem er skipað leikmönnum fæddum 2010 og 2011, hefur átt afar gott keppnistímabil og bætir Íslandsmeistaratitlinum við sigur á Rey Cup í lok júlí. Strákarnir eiga jafnframt möguleika á að…Lesa meira

true

Karen Anna keppti með framtíðarhópi SSÍ gegn Færeyjum

Sundkonan Karen Anna Orlita frá Akranesi keppti um liðna helgi með framtíðarhópi Sundsambands Íslands gegn Færeyjum. Keppnin er ætluð 13–15 ára sundfólki og er þetta annað árið sem hún fer fram – og jafnframt í annað sinn sem Karen Anna tekur þátt. Í ár fór mótið fram í Keflavík og ríkti þar frábær stemning. Áherslan…Lesa meira

true

Varað er við suðaustan hvassviðri í nótt

Vegagerðin bendir á að næstu nótt hvessir úr suðaustri um suðvestanvert landið. Hviður verða allt að 35 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Jafnvel einnig við Eyjafjöll. Lægir nærri hádegi.Lesa meira

true

Orkusalan opnar hraðhleðslustöðvar í Stykkishólmi

Orkusalan opnaði á föstudaginn tvær hraðhleðslustöðvar við Nesveg 1 í Stykkishólmi. Opnunin er liður í áframhaldandi uppbyggingu StoppuStuðs og styrkir aðgengi rafbílaeigenda að öflugri hleðslu á Snæfellsnesi. „Við erum stöðugt að bæta við hleðslunetið okkar og eru hraðhleðslustöðvarnar góður kostur fyrir ferðalanga sem þurfa að hlaða hratt og örugglega á lengri ferðum. Að ferðast á…Lesa meira