Varað er við suðaustan hvassviðri í nótt

Vegagerðin bendir á að næstu nótt hvessir úr suðaustri um suðvestanvert landið. Hviður verða allt að 35 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Jafnvel einnig við Eyjafjöll. Lægir nærri hádegi.