Góðar heimtur í fyrstu leit

Réttað var í Þverárrétt í Borgarfirði síðdegis á sunnudag og í gærmorgun. Að sögn bænda gekk vel að smala afréttinn og það var staðfest með tölum um heimtur. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr réttinni. Veðrið var með besta móti, stemningin góð og lömbin væn.