
Íslandsmeistararnir fögnuðu einnig sigri á Rey Cup í sumar. Myndin var tekin eftir úrslitaleikinn á Laugardalsvelli í júlí. Ljósm. Gísli Karlsson.
Þriðji flokkur karla Íslandsmeistari
Þriðji flokkur karla hjá ÍA tryggði sér á dögunum Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 3:2 sigri á Breiðabliki þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu. Liðið, sem er skipað leikmönnum fæddum 2010 og 2011, hefur átt afar gott keppnistímabil og bætir Íslandsmeistaratitlinum við sigur á Rey Cup í lok júlí.