
Fjölmargir lögðu leið sína á safnasvæðið á Görðum til að kaupa kartöflur og grænmeti beint frá bónda, hlusta á fyrirlestur um sögu kartöflunnar í Stúkuhúsinu og smakka kartöflukonfekt. Hér eru Jarðepla Jói, Gunna Maja og Þórður sem öll seldu ræktun sína. Ljósm. Akraneskaupstaður.
Litla kartöfluhátíðin á safnasvæðinu í Görðum
Litla kartöfluhátíðin fór fram á safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðastliðinn laugardag í blíðskapar veðri. Fjölmargir gestir lögðu leið sína á svæðið, keyptu kartöflur og annað nýupptekið grænmeti beint frá bændum, hlýddu á fróðlegt erindi um sögu kartöflunnar og gæddu sér á heldur óvenjulegu góðgæti – kartöflukonfekti. Hátíðin var nú haldin í fimmta sinn. Kartöflurækt á sér langa sögu á Akranesi og var bærinn um tíma kunnur víða um land fyrir ræktunina. Litlu kartöfluhátíðinni er meðal annars ætlað að halda þeirri sögu á lofti og tengja saman ræktun, matarmenningu og menningararf svæðisins.