Fréttir

true

Akranes vill halda eigin áformum um skammtímadvöl til streitu

Tillaga um sameiginlegan rekstur skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi var tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn Akraness á fundi hennar í gær. Tillagan var unnin af framkvæmdastjórum sveitarfélaga á Vesturlandi í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviða á svæðinu. Velferðar- og mannréttindaráð Akraness hafði áður tekið tillöguna fyrir og fagnaði þeirri uppbyggingu sem þar er lögð til.…Lesa meira

true

Hefja viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna mögulegs samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónusta Vesturlands er samtarf sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Fyrir nokkru voru gerðar breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 sem m.a. fólst í því að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa umdæmisráð. Þá…Lesa meira

true

Þróttur fagnar 80 árum og er elsta verktakafyrirtæki landsins

Þrjár kynslóðir byggja á sama grunni Verktakafyrirtækið Þróttur á Akranesi stendur á merkum tímamótum en nú eru 80 ár liðin frá stofnun þess. Fyrirtækið hefur verið rekið á sömu kennitölu frá upphafi og saga þess spannar nú þrjár kynslóðir sömu fjölskyldu. Reksturinn hófst í smáum stíl árið 1946, með dráttarvél og síðar einni jarðýtu, en…Lesa meira

true

Þétta net hleðslustöðva

Loftslags- og orkusjóður hefur úthlutað 151 milljón króna í styrki til að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla um landið. Alls hljóta 17 verkefni styrk, þar af 13 vegna uppsetningar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og fjögur við þjóðvegakerfið. Markmiðið er að hvergi verði meira en 100 kílómetrar á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð verði í…Lesa meira

true

Lægri vatnsþrýstingur á Akranesi fimmtudagskvöld

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn vatnsveitu má búast við lægri þrýstingi á Akranesi fimmtudaginn 10. september kl. 21:00 – föstudagsins 11. september kl. 01:00. „Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga…Lesa meira

true

Fimm hundruð nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands

„Framhaldsskólar eiga að vera fjölbreyttir“ Góð aðsókn er að Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í haust og um 500 nemendur stunda þar nám. Sérstaklega er áberandi mikill áhugi á iðn- og verknámi og óvenju stór hópur stundar nú vélvirkjanám. Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari segir skólann vera í góðum málum, en áskoranir séu þó fyrir hendi. Heimavistin…Lesa meira

true

Fleiri villtir laxar veiðst á Vesturlandi en restinni af landinu

Nú líður að lokum laxveiðitímabilsins hér á landi. Nokkuð misjafnt er hvenær veiðum lýkur. Athyglisvert er að skoða tölur um veidda villta laxa miðvikudaginn 2. september síðastliðinn. Þá höfðu í ánum á Vesturlandi og Vestfjörðum veiðst 12.626 laxar. Samtals í öðrum landshlutum var veiðin komin í 10.556 laxar. Þar af veiddust 3.202 laxar á Austurlandi,…Lesa meira

true

Þrenging verður áfram á brúnni

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vinna undir Borgarfjarðarbrúnni gengur vel, en þó sé ljóst að tafir hafa orðið á verkinu. „Við munum setja aðra bráðabirgðalögn ofan á brúnna til að tryggja tengingu við nægt heitt vatn í bænum [Borgarnesi, innsk. blm.] í vetur. Þrengingin á brúnni verður því áfram í vetur og hraðatakmarkanir…Lesa meira

true

Námsárangur undir meðaltali

Nýjar niðurstöður PISA 2025 voru kynntar í morgun. Þær sýna að frammistaða íslenskra nemenda er undir meðaltali OECD-ríkja og síðri en frammistaða jafnaldra þeirra annars staðar á Norðurlöndunum á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar. Frammistaðan heldur áfram að dala í lesskilningi og stærðfræðilæsi og langtímaþróunin er skýr: Of mörg börn ljúka grunnskóla án þeirrar grunnhæfni sem…Lesa meira

true

Opið hús hjá listamönnum í Saltporti

Opið hús verður í Saltporti að Hellisgötu 1a á Hellissandi föstudaginn 11. september frá kl. 14-17. Þar gefst gestum kostur á að kynna sér listsköpun tveggja þýskra listamanna sem að undanförnu hafa haft þar vinnuaðstöðu. Annar þeirra er Gerhard König myndlistarmaður sem kom fyrst til Íslands fyrir rúmum 30 árum og hefur síðan starfað og…Lesa meira