Lægri vatnsþrýstingur á Akranesi fimmtudagskvöld

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn vatnsveitu má búast við lægri þrýstingi á Akranesi fimmtudaginn 10. september kl. 21:00 - föstudagsins 11. september kl. 01:00. „Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu frá Veitum.