
Hleðslustöð við Bjarkalund í Reykhólasveit. Ljósm. úr safni
Þétta net hleðslustöðva
Loftslags- og orkusjóður hefur úthlutað 151 milljón króna í styrki til að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla um landið. Alls hljóta 17 verkefni styrk, þar af 13 vegna uppsetningar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og fjögur við þjóðvegakerfið. Markmiðið er að hvergi verði meira en 100 kílómetrar á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð verði í öllum þéttbýliskjörnum landsins. Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um 21 og hleðslutengjum um 41. Á öllum stöðvunum verður hægt að greiða með greiðslukorti án þess að nota þurfi sérstakt app eða vera með áskrift.