Fréttir

true

Göngin hreinsuð að næturlagi í næstu viku

Unnið verður við þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7. til og með 9. september, frá kl. 23.00 til 6.30. Fylgdarakstur verður um göngin á meðan vinna stendur yfir. „Vegfarendur eru hvattir til að aka varlega og fylgja leiðbeiningum starfsfólks. Við þrif getur myndast mikil hálka í göngunum og því er sérstaklega mikilvægt…Lesa meira

true

Nemendur fengu innsýn í notkun dróna í landbúnaði

BS nemendur í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands fengu í vikunni góðan gest þegar Arnar Þór Þórsson frá Dronefly mætti á svæðið. Tilefni heimsóknarinnar var að veita nemendum hagnýta innsýn í hvernig nýjasta tækni er að breyta búskap. „Í heimsókninni kenndi Arnar nemendum á drónann DJI Agras T25, en sá dróni er sérstaklega hannaður með nákvæmnislandbúnað…Lesa meira

true

Ólíklegt að náist að fylla kvótann

Nú hafa 72 langreyðar verið veiddar á hvalvertíðinni sem hófst í lok júní. Vísir.is fjallaði um málið. Kvótinn er 150 dýr en í núverandi hvalveiðileyfi skilyrti ráðherra að 34 dýr skyldu veidd austanlands, en vegna fjarlægðar er ekki raunhæft að veiða dýr þar og draga í Hvalfjörð. Hvalveiðum hefur í seinni tíð venjulega lokið í…Lesa meira

true

Ný lög um stórþörungarækt boðuð í haust

Ráðstefnan Gull á grunnsævi haldin á Akranesi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst í haust mæla fyrir nýju frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó. Frumvarpinu er ætlað að skapa skýran lagaramma utan um atvinnugrein sem enn er ung hér á landi en talsverðar væntingar eru bundnar við. Ráðherra greindi frá þessu í opnunarræðu sinni á…Lesa meira

true

Styrkir til uppbyggingar vinnustaðaklasa

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Úthlutað verður allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september nk. Byggðastofnun annast umsýslu styrkjanna fyrir hönd innviðaráðherra, sem veitir þá á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Styrkirnir falla undir aðgerð B7 um óstaðbundin störf. Markmið aðgerðarinnar…Lesa meira

true

Börn vilja takmarka símanotkun í skólum

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í gær Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025. Þar er farið yfir stöðu réttinda barna og helstu verkefni embættisins á árinu, en þá voru jafnframt liðin 30 ár frá því umboðsmaður barna tók til starfa. Fram kemur að réttindi barna hafi styrkst verulega á þessum þremur áratugum og…Lesa meira

true

Tveir laxar voru nóg fyrir Jógvan

„Já, það var bara veisla skal ég segja þér á efsta svæðinu í Langá á Mýrum í vikunni, alveg meiriháttar,“ sagði Jógvan Hansen nýkominn úr veiði og tveir laxar voru nóg fyrir kallinn. „Ég skal segja þér að þetta að þetta var veisla. Ég var einn þarna lengst upp á fjalli og frábær veiði. Það…Lesa meira

true

Bæjarsjóður greiðir 80 milljónir vegna veikinda starfsfólks á hálfu ári

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar nýverið var til umræðu kostnaður vegna langtíma veikinda starfsfólks. Fram kemur að á sex mánaða tímabili, frá janúar til og með júní, hafi veikindaforföll starfsmanna kaupstaðarins kostað bæjarsjóð 80.350.345 krónur. „Bæjarráð áréttar að þegar hefur verið ráðist í tilteknar aðgerðir sem varða velferð starfsfólks svo sem upptöku svokallaðs Bradford kvarða, sérstakrar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um uppbyggingu gagnaverssvæðis á Akranesi

Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi. Eigendur félagsins munu í samstarfi við Akraneskaupstað leiða undirbúning og þróun verkefnisins. Gert er ráð fyrir að gagnaverssvæðið verði byggt upp í sjálfstæðum áföngum, sem teknir verða í notkun eftir því sem verkefninu…Lesa meira

true

Mikið fjör í upphafi annar í FSN

Skólastarf er komið á fullt í skólum landsins og Fjölbrautaskóli Snæfellinga er engin undantekning á því. Nemendur brugðu á leik miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn en þá stóð Nemendafélag FSN fyrir ratleik þar sem nýnemar létu ljós sitt skína. Allskonar þema var í hópunum og þar mátti sjá einhyrninga, kúreka, trúða og fleiri skondnar fígúrur. Ný…Lesa meira