Fréttir

true

Stómi er á engan hátt endir á lífinu

Auður Helgadóttir Möller segir frá reynslu sinni af lífinu með stóma og vill með opinskárri frásögn sinni draga úr fordómum og sýna að hægt er að lifa innihaldsríku og góðu lífi þrátt fyrir stóma „Ég geri allt sem ég gerði áður, nákvæmlega allt. Ég þarf bara að aðlaga mig,“ segir Auður Helgadóttir Möller í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Klapparfljótið gefur vel

„Það er búið að veiða 41 lax í sumar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ segir Úlfar Reynisson sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi. „Við veiddum sex laxa, tvo sjóbirtinga og 15 – 20 bleikjur.  Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar. Það er óvenjulítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenjulítið vatn…Lesa meira

true

Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í…Lesa meira

true

Garðeigendur hvattir til að halda gróðri innan lóðamarka

Gróður hefur tekið vel við sér í sumar – ekki hvað síst fyrir sérlega góða vætutíð – og eru garðeigendur á Akranesi nú hvattir til að huga að trjám og runnum sem vaxið hafa út fyrir lóðamörk og inn á gangstéttir, göngustíga eða götur. Akraneskaupstaður minnir á að mikilvægt sé að halda gróðri í skefjum…Lesa meira

true

Landsbankinn og TM bjóða til afmælisveislu í dag

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni bjóða fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00. Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis…Lesa meira

true

Nýtt ljóð og lag tileinkað Hvalfjarðarsveit

Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar hefur verið samið sérstakt ljóð og lag sveitarfélaginu til heiðurs. Gunnar J. Straumland íbúi í sveitarfélaginu samdi ljóðið en Jósep Gíslason tónsetti það. Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um liðna helgi. Þar komu fram um 30 flytjendur sem allir eiga…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis

Næstkomandi föstudagskvöld klukkan 20 verða haldnir tónleikar í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þeir eru á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar, en sjóðurinn hefur það mikilvæga hlutverk að styðja við efnilega tónlistarmenn og hjálpa þeim að sækja sér frekara nám og þróa hæfileika sína. Sjóðurinn hefur nú þegar stutt við fjölmarga unga tónlistarmenn á þeirra vegferð. „Um er…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Suðurgötu 57 mega nú hefjast

Framkvæmdir vegna uppbyggingar við Suðurgötu 57 á Akranesi geta nú hafist eftir að Skipulagsstofnun staðfesti nýverið breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Eigendur Landsbankahússins, sem standa að uppbyggingunni, kynntu stöðu verkefnisins á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 13. ágúst sl. Ívar F. Sturluson og Höskuldur Gunnlaugsson mættu á fundinn fyrir hönd forsvarsmanna Landsbankahússins og fóru yfir fyrirhugaðar framkvæmdir…Lesa meira

true

Lægri vatnsþrýstingur annað kvöld

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn vatnsveitu á Akranesi má búast við lægri þrýstingi annað kvöld, fimmtudaginn 20. ágúst, frá kl. 22:00 til kl. 01:00. Veitur biðjast afsökunar á óþægindum vegna þessa.Lesa meira

true

Tíu ár, tryggir viðskiptavinir og kleinur á föstudögum

Verslunin Bresabúð á Akranesi fagnar tíu ára afmæli í dag, 19. ágúst, en hún er til húsa að Kalmansvöllum 1a. Eigendurnir Karvel Lindberg Karvelsson og Márus Líndal Hjartarson stofnuðu búðina árið 2016 eftir að hafa sjálfir rekið sig á skort á ákveðnum vörum og þjónustu á Akranesi. Síðan hefur reksturinn vaxið hægt en örugglega og…Lesa meira