Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis

Næstkomandi föstudagskvöld klukkan 20 verða haldnir tónleikar í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þeir eru á vegum Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar, en sjóðurinn hefur það mikilvæga hlutverk að styðja við efnilega tónlistarmenn og hjálpa þeim að sækja sér frekara nám og þróa hæfileika sína. Sjóðurinn hefur nú þegar stutt við fjölmarga unga tónlistarmenn á þeirra vegferð. „Um er að ræða einstakt kvöld þar sem tónlist, samfélag og góð málefni sameinast. Komdu og njóttu frábærrar tónlistar í Hjálmakletti í Borgarnesi,“ segir í tilkynningu.

Boðið er upp á einstaka Tónaveislu í Hjálmakletti í Borgarnesi, þar sem þekktir tónlistarmenn, söngvarar og efnilegir listamenn koma saman á glæsilegum tónleikum til stuðnings góðu málefni. Á sviðið stíga meðal annarra: Jón Ólafsson, Hildur Vala Einarsdóttir,  Snorri Helgason, Saga Garðarsdóttir, Magni Ásgeirsson, Ása og Emma, Guðbrandur Örn og Æskukórinn, börn úr Borgarbyggð.

Miðaverð er 6.000 kr. en 12 ára og yngri greiða 1.000 kr. Miðar fást á Midix.is: