Landsbankinn og TM bjóða til afmælisveislu í dag

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni bjóða fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.

Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. „Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman. Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Við hvetjum viðskiptavini til að líta við og fagna þessum tímamótum með okkur,“ segir í tilkynningu.