
Hvalfjarðarsveit hefur komið á framfæri þökkum til Gunnars J. Straumland og Jóseps Gíslasonar fyrir framlag þeirra við gerð verksins. Þá fékk tónleikanefnd Sumartónleika Hallgrímskirkju í Saurbæ sérstakar þakkir fyrir skipulag og utanumhald tónleikanna, auk þess sem öllum flytjendum er þakkað fyrir þátttökuna. F.v. Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri, Brynhildur Stefánsdóttir formaður menningarnefndar, Margrét Bóasdóttir formaður Sumartónleika, Gunnar J. Straumland og Jósep Gíslason. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Nýtt ljóð og lag tileinkað Hvalfjarðarsveit
Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar hefur verið samið sérstakt ljóð og lag sveitarfélaginu til heiðurs. Gunnar J. Straumland íbúi í sveitarfélaginu samdi ljóðið en Jósep Gíslason tónsetti það. Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um liðna helgi. Þar komu fram um 30 flytjendur sem allir eiga tengingu við Hvalfjarðarsveit. Tónleikarnir voru fjölbreyttir og þóttu takast vel, en dagskráin endurspeglaði þann mikla mannauð og öfluga tónlistarlíf sem er að finna í sveitarfélaginu.