Karvel Lindberg Karvelsson og Márus Líndal Hjartarson eigendur og rekstraraðilar Bresabúðar. Texti og myndir: ÓKH

Tíu ár, tryggir viðskiptavinir og kleinur á föstudögum

Verslunin Bresabúð á Akranesi fagnar tíu ára afmæli í dag, 19. ágúst, en hún er til húsa að Kalmansvöllum 1a. Eigendurnir Karvel Lindberg Karvelsson og Márus Líndal Hjartarson stofnuðu búðina árið 2016 eftir að hafa sjálfir rekið sig á skort á ákveðnum vörum og þjónustu á Akranesi. Síðan hefur reksturinn vaxið hægt en örugglega og viðskiptavinirnir koma nú víða að af Vesturlandi.