
Matvælastofnun vekur athygli á því að umsóknareyðublöð fyrir sölu líflamba verða fjarlægð af heimasíðu Matvælastofnunar 1. september nk. Þar með verður lokað fyrir möguleikann á að sækja um söluleyfi fyrir haustið.Lesa meira

Matvælastofnun vekur athygli á því að umsóknareyðublöð fyrir sölu líflamba verða fjarlægð af heimasíðu Matvælastofnunar 1. september nk. Þar með verður lokað fyrir möguleikann á að sækja um söluleyfi fyrir haustið.Lesa meira

Akraneskirkja fagnaði 130 ára vígsluafmæli sínu á dögunum og var nær fullt hús við hátíðarguðsþjónustu af því tilefni á sunnudaginn. Sr Þráinn Haraldsson, sóknarprestur á Akranesi, segir kirkjuna hafa verið mikilvægan hluta af samfélaginu allan þennan tíma; stað þar sem kynslóðir Skagamanna hafa komið saman á stórum stundum lífsins, í gleði jafnt sem sorg. „Akraneskirkja…Lesa meira

Starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði síðsumars, hefur nú hafið störf. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember nk. Fyrirkomulag ferjusiglinga í sumar mætti harðri gagnrýni í ljósi þess að Breiðafjarðarferjan Baldur var tekin úr siglingum á Breiðafirði og sett í siglingar samhliða Herjólfi til Vestmannaeyja. Brotthvarf…Lesa meira

Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi. Markmiðið er að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er en áætlað er að vinnan standi yfir í tvær til þrjár vikur. Á meðan útskolun stendur yfir geta íbúar orðið varir við lágan vatnsþrýsting og jafnvel tímabundið vatnsleysi hluta úr degi. Þá…Lesa meira

Í 37 ár hefur kjarni nokkurra vina og veiðifélaga stundað veiðar í Laxá í Leirársveit. Skilyrði til að mega slást í hópinn er að játa sig sem Framsóknarmann í veiðihúsinu,“ segir Hjálmar Árnason fv. skólameistari og alþingismaður. Hann bætir strax við: „Með okkur hafa verið alls kyns karlar úr hinum ýmsu flokkum en sambúðin verið…Lesa meira

Nýtt fjölnota íþróttahús við Skallagrímsvöll í Borgarnesi verður formlega vígt síðdegis í dag, 26. ágúst. Í kjölfar alútboðs samdi Borgarbyggð við verktakafélagið Ístak um byggingu hússins. Hafa framkvæmdir gengið vel. Tilboð Ístaks hljóðaði upp á 1.754 milljónir króna, sem var 95% af kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Í kjölfar fyrirspurnar Skessuhorns í gær upplýsir Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri…Lesa meira

Stúlkur ÍA í 2. flokki í knattspyrnu tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í B-deild eftir öruggan sigur á Gróttu/KR. Skagastúlkur hafa verið í miklu stuði í sumar og er titillinn í höfn þótt ein umferð sé enn eftir af mótinu. ÍA hefur leikið átta leiki í deildinni, unnið sjö þeirra og gert eitt jafntefli. Liðið…Lesa meira

Í dag frá klukkan 9-16 er unnið að malbikun framhjáhlaups og tengingar við Hringveg -Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar fagnar fyrirhugaðri uppbyggingu upplifunarmiðstöðvar og fornbílasafns að Fellsenda í Hvalfjarðarsveit. Í umsögn sinni gerir ráðið ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi vegna verkefnisins. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns er fyrirhugað að skilgreina um 16 hektara verslunar- og þjónustusvæði á Fellsenda þar sem fornbílasafn verður þungamiðja starfseminnar. Auk safnsins…Lesa meira

Í liðinni viku voru 72 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auð auki var 851 ökumaður myndaður af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Sex ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir stöðvaðir og handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Tveir…Lesa meira