Hátt í þúsund fengu hraðasektir í vikunni

Í liðinni viku voru 72 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auð auki var 851 ökumaður myndaður af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Sex ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir stöðvaðir og handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað og þrír stöðvaðir við akstur þar sem þeir höfðu ekki réttindi á þau ökutæki sem þeir voru að aka á.