Fréttir

true

Akranes er bær tækifæranna

Rætt við Sturlaug Haraldsson nýjan bæjarstjóra Sturlaugur Haraldsson tók við nýju starfi sl. miðvikudag sem bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og segist mæta fullur tilhlökkunar til leiks. Eftir áralanga reynslu úr atvinnulífinu, einkum sjávarútvegi, er hann kominn aftur á heimaslóðir og ætlar að leggja ríka áherslu á atvinnuuppbyggingu og að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem hann telur felast…Lesa meira

true

Forval hönnunar fyrir nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna

Faxaflóahafnir hafa nú á evrópska efnahgssvæðinu auglýst forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Þar er fyrirhugað að reisa nýjar höfuðstöðvar félagsins og sameina meginstarfsemi þess á einum stað. Ráðgert er að nýtt Hafnarhús verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og…Lesa meira

true

Frábær þátttaka í sumarlestri Bókasafns Akraness

Það var sannkölluð lestrarveisla á Bókasafni Akraness í sumar en alls lásu þátttakendur í sumarlestri safnsins 1.475 bækur og rúmlega 85 þúsund blaðsíður. Sumarlestrinum lauk með hinu árlega Húllum-hæi á safninu fyrr í vikunni þar sem trúðurinn Wally mætti í heimsókn og glatt var á hjalla. Sumarlesturinn stóð frá 1. júní til 17. ágúst og…Lesa meira

true

Um 70 manns á opnum fundi SJÁ á Akranesi

Haldinn var fundur samtakanna SJÁ í Tónbergi á Akranesi síðdegis í gær. Fundurinn var liður í fundaröð samtakanna víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Berglind Guðmundsdóttir hjá SJÁ setti fundinn, en á fundinum fluttu erindi þau Heimir Fannar Gunnlaugsson, Halldór Emil Unnarsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Jens Baldursson og Ingunn Ríkharðsdóttir. Aðsókn var góð…Lesa meira

true

Fararskjótar af ýmsu tagi

Það er býsna ólíkt hvernig fólk ferðast um landið okkar. Getur verið allt frá því að fara á puttanum, hjólandi, í rútum, einkabílum, húsbílum og svo framvegis. Fjölskyldan á þessari mynd valdi að ferðast um landið á reiðhjólum. Annað hjólin er sérútbúið til að hafa barnið framan við stýrið og það stígur einnig pedala ásamt…Lesa meira

true

Fagna 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar

Sunnudaginn 6. september næstkomandi verður þess minnst með hátíðlegum hætti að 60 ár eru liðin frá vígslu Grundarfjarðarkirkju. Hátíðarmessa hefst í kirkjunni kl. 14 og að henni lokinni verður boðið upp á hátíðarkaffi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Kvenfélagið Gleym mér ei sér um kaffiveitingarnar og eru allir hjartanlega velkomnir til að taka þátt í afmælisfagnaðinum.Lesa meira

true

Tjaran þarf hita og ákveðið handbragð í Görðum

Það hefur verið nóg að gera í viðhaldi á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi í sumar. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði var Guðmundur Sigurðsson smiður þar við störf, léttklæddur í sumarblíðunni og önnum kafinn við að tjarga Neðri-Sýrupart, eitt húsanna á safnsvæðinu. Neðri-Sýrupartur er elsta varðveitta timburhús á Akranesi, byggt árið 1875 og stóð…Lesa meira

true

Hyggjast auka öryggi við gatnamót

Vegagerðin hyggst ráðast í breytingar á umferðarskipulagi við gatnamót Akrafjallsvegar og Hringvegar í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að auka umferðaröryggi. Ákveðið hefur verið að lækka leyfilegan hámarkshraða á Akrafjallsvegi þegar komið er að gatnamótunum. Jafnframt verður núverandi biðskyldu breytt í stöðvunarskyldu og þurfa ökumenn því að stöðva ökutæki sín áður en ekið er inn…Lesa meira

true

Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi

Það var líf og fjör við sundlaugina í Borgarnesi síðdegis í dag þegar fram fór vígsla á endurnýjuðum rennibrautum í Skallagrímslitunum. Gömlu brautirnar voru hátt í 30 ára gamlar og voru því teknar niður fyrr á árinu. Allt trefjaplast var endurnýjað í brautunum en stoðir lagfærðar og endurnýttar. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil um röð…Lesa meira

true

Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo…Lesa meira