
Trúðurinn Wally að skemmta. Ljósm. akranes.is
Frábær þátttaka í sumarlestri Bókasafns Akraness
Það var sannkölluð lestrarveisla á Bókasafni Akraness í sumar en alls lásu þátttakendur í sumarlestri safnsins 1.475 bækur og rúmlega 85 þúsund blaðsíður. Sumarlestrinum lauk með hinu árlega Húllum-hæi á safninu fyrr í vikunni þar sem trúðurinn Wally mætti í heimsókn og glatt var á hjalla. Sumarlesturinn stóð frá 1. júní til 17. ágúst og var ætlaður börnum á aldrinum sex til tólf ára. Alls skráðu 175 börn sig til leiks og tóku 119 þeirra virkan þátt. Börnin fengu lestrardagbók þar sem þau héldu utan um bækurnar og blaðsíðurnar sem þau lásu.