Hyggjast auka öryggi við gatnamót

Vegagerðin hyggst ráðast í breytingar á umferðarskipulagi við gatnamót Akrafjallsvegar og Hringvegar í Hvalfjarðarsveit með það að markmiði að auka umferðaröryggi. Ákveðið hefur verið að lækka leyfilegan hámarkshraða á Akrafjallsvegi þegar komið er að gatnamótunum. Jafnframt verður núverandi biðskyldu breytt í stöðvunarskyldu og þurfa ökumenn því að stöðva ökutæki sín áður en ekið er inn á Hringveginn. Þá verður einnig skoðað hvort koma eigi fyrir svokölluðum „buldurspölum“ á Akrafjallsvegi. Þeim er ætlað að vekja athygli ökumanna á gatnamótunum og hvetja þá til að draga úr hraða áður en að þeim er komið. Breytingarnar eru liður í að bæta öryggi vegfarenda á þessum fjölförnu gatnamótum.