
Berglind Guðmundsdóttir hjá samtökunum SJÁ setti fundinn. Ljósm. óhk
Um 70 manns á opnum fundi SJÁ á Akranesi
Haldinn var fundur samtakanna SJÁ í Tónbergi á Akranesi síðdegis í gær. Fundurinn var liður í fundaröð samtakanna víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Berglind Guðmundsdóttir hjá SJÁ setti fundinn, en á fundinum fluttu erindi þau Heimir Fannar Gunnlaugsson, Halldór Emil Unnarsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Jens Baldursson og Ingunn Ríkharðsdóttir. Aðsókn var góð en ríflega 70 manns komu saman í Tónbergi og hliðarsalurinn þétt setinn.