
Mynd sem sýnir staðsetningu nýs Hafnarhúss, en það verður framarlega til hægri við flotbryggjuna og Skarfaklett þar sem nú er m.a. bílastæði. Ljósm. Faxaflóahafnir
Forval hönnunar fyrir nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna
Faxaflóahafnir hafa nú á evrópska efnahgssvæðinu auglýst forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Þar er fyrirhugað að reisa nýjar höfuðstöðvar félagsins og sameina meginstarfsemi þess á einum stað. Ráðgert er að nýtt Hafnarhús verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. „Markmiðið er að skapa nútímalegt og sveigjanlegt starfsumhverfi sem eflir samstarf, styttir boðleiðir og styður við skilvirka og hagkvæma starfsemi til framtíðar,“ segir í tilkynningu.