Fréttir

true

Skagakonur lögðu Keflavík á Akranesi

Kvennalið ÍA vann mikilvægan 2:1 sigur á Keflavík á heimavelli á Akranesi síðast liðinn föstudag. Skagakonur voru með forystuna frá 27. mínútu og þrátt fyrir að gestirnir næðu að minnka muninn undir lokin héldu heimakonur fengnum hlut og fögnuðu þremur stigum. Madison Brooke Schwartzenberger kom ÍA yfir á 27. mínútu og reyndist það eina mark…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Eclipse þótti takast vel

Tónlistarhátíðin Iceland Eclipse var haldin á Hellissandi dagana 11. til 15. ágúst. Fjölmenni dvaldi á svæðinu og voru settar upp tjaldbúðir sem hýstu hluta gesta. Hátíðin fór vel fram og engin alvarleg óhöpp urðu á svæðinu. Auk hátíðarinnar var sólmyrkvinn sl. miðvikudag og talið er að yfir tíu þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar…Lesa meira

true

Sýningin Stiklur opnuð í Byggðasafninu

Myndlistarsýningin Stiklur eftir Elvu Hreiðarsdóttur var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi á laugardaginn. Á sýningunni eru verk unnin með blandaðri tækni og innblásin af náttúru og upplifunum Elvu á Snæfellsnesi, meðal annars göngu hennar umhverfis Snæfellsjökul árið 2023. Sandra Thomsen Halldórsdóttir flutti nokkur lög við opnunina og boðið var upp á léttar…Lesa meira

true

Hallarekstur Dalabyggðar meiri en gert var ráð fyrir

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar fyrir stuttu var lagt fram milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins eftir umræðu í byggðarráði um sama málefni. Fram kemur að ekki hafi áður verið unnið milliuppgjör fyrir Dalabyggð og því eru ekki til viðmiðunartölur áranna á undan heldur notast við áætlaðar niðurstöðutölur ársins; gróft mat á stöðunni við lok fyrstu…Lesa meira

true

Gengið á Akrafjallið næstkomandi laugardag

Góð þátttaka hefur verið í gönguferðum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs í sumar. Fjölbreyttar leiðir hafa verið farnar og var síðast gengið á fjallið Tungu, líparítfjall innst í Hvítársíðu. Næstkomandi laugardag 22. ágúst verður svo farið á Akrafjall. Genginn verður hringur á fjallinu, á Geirmundartind sem er 643 m hár og Jókubungu sem er á sunnanverðu fjallinu og…Lesa meira

true

Hárstofan í Stykkishólmi fagnar 25 ára afmæli

Hárstofan í Stykkishólmi fagnaði nýverið 25 ára afmæli sínu. Því var fagnað með léttum veitingum og gestir gátu gert góð kaup. Allir sem áttu viðskipti fengu jafnframt tækifæri til að taka þátt í lukkupotti þar sem í boði var 25.000 króna gjafabréf frá Hárstofunni. Hljómsveitin Hárbandið, sem skipuð er af þeim Bæring Nóa, Bæring Breiðfjörð…Lesa meira

true

Kári með stóran sigur í Vesturlandsslagnum

Kári frá Akranesi hafði betur gegn Víkingi Ólafsvík; 4-1 í leik í annarri deildinni í fótbolta í gær. Skagamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik eftir mörk frá Sigurjóni Loga Bergþórssyni, Marinó Hilmari Ásgeirssyni og Finnboga Laxdal Aðalgeirssyni. Marinó Hilmar skoraði sitt annað mark snemma í síðari hálfleik áður en Luis Romero klóraði í bakkann…Lesa meira

true

Skallagrímur á toppinn

Þrír leikir voru á dagskrá í A-riðli 5. deildar karla í fótbolta í gær. Skallagrímur fór upp fyrir Smára og kom sér á topp A-riðils eftir 6-1 stórsigur gegn Uppsveitum á Laugarvatni. Heimamenn komust yfir eftir aðeins fjórar mínútur en gestirnir svöruðu með sex mörkum. Pétur Lárusson var hlutskarpastur í liði Skallagríms og skoraði hann…Lesa meira

true

Kalla eftir hugmyndum um nafn á nýtt íþróttahús

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur auglýst eftir tillögum að nafni á nýju fjölnota íþróttahúsið við Skallagrímsvöll. Nú styttist í formlega opnun á húsinu og því er tilvalið að huga að nafni. Hægt er að senda inn tillögur á vefslóðinni hér.Lesa meira

true

Sóttu slasaðan einstakling

Síðdegis í gær voru björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar í Skollurð, austan til í Hestfjalli í Borgarfirði. Þar hafði manneskja slasast í fjallgöngu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Félagar í Björgunarsveitinni Ok ferjuðu lækni á slysstað og bjó hann um hinn slasaða en þyrlan flutti hann svo til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík.Lesa meira