Gengið á Akrafjallið næstkomandi laugardag

Góð þátttaka hefur verið í gönguferðum Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs í sumar. Fjölbreyttar leiðir hafa verið farnar og var síðast gengið á fjallið Tungu, líparítfjall innst í Hvítársíðu. Næstkomandi laugardag 22. ágúst verður svo farið á Akrafjall.