
Jóhanna Kristín hársnyrtir og Bjarndís Emilsdóttir eigandi Hárstofunnar. Ljósm. gsp
Hárstofan í Stykkishólmi fagnar 25 ára afmæli
Hárstofan í Stykkishólmi fagnaði nýverið 25 ára afmæli sínu. Því var fagnað með léttum veitingum og gestir gátu gert góð kaup. Allir sem áttu viðskipti fengu jafnframt tækifæri til að taka þátt í lukkupotti þar sem í boði var 25.000 króna gjafabréf frá Hárstofunni. Hljómsveitin Hárbandið, sem skipuð er af þeim Bæring Nóa, Bæring Breiðfjörð og Jóni Sindra, lék fyrir gesti og skapaði notalega stemningu með ljúfum tónum.