Hátíðarsvæðið var fallega rammað inn í landslagið. Ljósmyndir: AF

Tónlistarhátíðin Eclipse þótti takast vel

Tónlistarhátíðin Iceland Eclipse var haldin á Hellissandi dagana 11. til 15. ágúst. Fjölmenni dvaldi á svæðinu og voru settar upp tjaldbúðir sem hýstu hluta gesta. Hátíðin fór vel fram og engin alvarleg óhöpp urðu á svæðinu. Auk hátíðarinnar var sólmyrkvinn sl. miðvikudag og talið er að yfir tíu þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar mest var. Flestir gestanna komu til að sjá sólmyrkvann en mjög skýað var reyndar þegar hann gekk yfir. Það kom þó ekki að sök því gestir voru nægjusamir og dásömuðu þá sjón sem við þeim blasti.