Sóttu slasaðan einstakling

Síðdegis í gær voru björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar í Skollurð, austan til í Hestfjalli í Borgarfirði. Þar hafði manneskja slasast í fjallgöngu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Félagar í Björgunarsveitinni Ok ferjuðu lækni á slysstað og bjó hann um hinn slasaða en þyrlan flutti hann svo til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík.