
Hallarekstur Dalabyggðar meiri en gert var ráð fyrir
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar fyrir stuttu var lagt fram milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins eftir umræðu í byggðarráði um sama málefni. Fram kemur að ekki hafi áður verið unnið milliuppgjör fyrir Dalabyggð og því eru ekki til viðmiðunartölur áranna á undan heldur notast við áætlaðar niðurstöðutölur ársins; gróft mat á stöðunni við lok fyrstu fimm mánaðanna. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir halla upp á tæplega 22,3 milljónir á A hluta sveitarsjóðs við árslok, en helstu niðurstöður benda til þess að hallareksturinn verði töluvert meiri á yfirstandandi ári en gert var ráð fyrir í áætlun. Helstu skýringar eru þróun verðlags, aukinn launakostnaður og seinkun á áætluðum tekjum, en rekstur sveitarfélagsins er þannig samansettur að útgjöld stærri liða eru oft þyngri fyrri hluta ársins.