Byrjunarlið Kára. Ljósm. Kári

Kári með stóran sigur í Vesturlandsslagnum

Kári frá Akranesi hafði betur gegn Víkingi Ólafsvík; 4-1 í leik í annarri deildinni í fótbolta í gær. Skagamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik eftir mörk frá Sigurjóni Loga Bergþórssyni, Marinó Hilmari Ásgeirssyni og Finnboga Laxdal Aðalgeirssyni. Marinó Hilmar skoraði sitt annað mark snemma í síðari hálfleik áður en Luis Romero klóraði í bakkann fyrir Ólsara stundarfjórðungi fyrir leikslok.